Illugi ekki sáttur: „Þarna er komið eitt helsta hlutverk Bjarna í pólitík“

Illugi Jökulsson, samfélagsrýnir og fyrrverandi blaðamaður, gerir forsíðufrétt Fréttablaðsins að umtalsefni á Facebook-síðu sinni.

Eins og kunnugt er kynnti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra nýtt fjárlagafrumvarp í gær en í viðtali við Fréttablaðið segir hann að mikil tækifæri felist í auknum einkarekstri heilbrigðiskerfisins. Ríkið eigi að einbeita sér að rekstri þjóðarspítalans.

„Ég tel að við munum ná mun meiri árangri ef við aukum samstarf opinberra aðila við einka­aðila,“ segir Bjarni sem segir helstu umbætur undanfarið tengjast auknu einkaframtaki. Nefnir hann liðskiptaaðgerðir til dæmis þar sem samstarf við einkaaðila hefur aukist og gefist mjög vel.

„Sama á við um hjúkrunarheimilin þar sem margir sjálfstætt starfandi hafa náð frábærum árangri,“ segir Bjarni í Fréttablaðinu.

Ekki eru allir sáttir við þessa þróun og er Illugi einn þeirra ef marka má færslu hans á Facebook í morgunsárið.

„Þarna er komið eitt helsta hlutverk Bjarna í pólitík. Svelta heilbrigðiskerfið svo allir láti sér lynda þegar hann færir hræið vinum sínum. Takk Katrín fyrir að gera honum þetta kleift. Takk Mummi. Takk Steinunn Þóra og þið hin. Bjarni mun þakka ykkur í huganum þegar hann flyst að lokum suður til Flórída eftir vel unnin störf fyrir ríka fólkið sitt. Og takk alveg sérstaklega Svandís. Vel gert hjá ykkur, ha?“