Illugi brjálaður út í skrif Brynjars í gær: „HVERSU MIKIÐ DRASL ER HÆGT AÐ BJÓÐA OKKUR UPP Á?“

Illugi Jökulsson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi ritstjóri, furðar sig á skrifum sem Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og núverandi aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, birti á Twitter í gær.

„Fjölmiðlamenn eru að slá í gegn sem aldrei fyrr. Nú þurfum við að verja þá gegn ofsóknum lögreglu og stjórnmálamanna. Gætum byrjað á að stofna áfallahjálparsjóð. Svo gætum við undanþegið þá frá ákvæðum hegningarlaga og laga um meðferð sakamála,“ sagði Brynjar í færslunni sem Illugi vísar til.

Mikið hefur verið fjallað um yfirvofandi yfirheyrslur lögreglunnar á Norðurlandi eystra yfir fjórum blaðamönnum vegna umfjöllunar þeirra um skæruliðadeild Samherja. Sjálfstæðismenn hafa varið ákvörðun lögreglustjórans Páleyjar Borgþórsdóttur og fór sjálfur Bjarni Benediktsson, formaður flokksins og fjármálaráðherra, þar fremstur.

Illugi á erfitt með að átta sig á skrifum Brynjars og er hann ekki einn um það.

„Það er vissulega fyrir neðan virðingu flestra að leiða um of hugann að Brynjari Níelssyni, en nú er maðurinn aðstoðarmaður æðsta yfirmanns lögreglu- og dómsmála í landinu, svo það skiptir því miður máli hvað hann segir. Og nú sér þessi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra ástæðu til að gera grín að fólki sem sætir sakamálarannsókn,“ segir Illugi á Facebook-síðu sinni og vísar í skrif Brynjars í gær.

„HVERSU LÁGT ER HÆGT AÐ LEGGJAST? HVERSU MIKIÐ DRASL ER HÆGT AÐ BJÓÐA OKKUR UPP Á? En þetta mun engar afleiðingar hafa fyrir Brynjar, enda er Bjarni búinn að gefa flokkslínuna. Og Katrín forsætisráðherra mun heldur ekki segja neitt, enda talar hún ekki við neinn nema þá sem segja henni hvað hún sé frábær.“

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, furðaði sig einnig á skrifum Brynjars á Twitter í gær.