Illa farið með kött sem fannst slasaður: „Ég get ekki annað en verið reið núna“

„Helst vil ég trúa því að flest allir sem fá sér gæludýr geri sér grein fyrir ábyrgðinni og kostnaðinum fylgir og við skulum ekki gleyma að kettir verða 15 til 20 ára gamlir.“

Þetta segir í færslu sem birtist á Facebook-síðu Villikatta, en félagið sem um ræðir var stofnað til að standa vörð umdýravernd fyrir villta ketti á Íslandi. 

„Ég get ekki annað en verið reið núna en í gær fengum við tilkynningum um að þessi geldi, örmerkti fress f. 2017 væri slasaður,“ segir í færslunni og því bætt við að hann sé mikið bólginn í andliti og haltur, greinilega hjálparþurfi.

Fram kemur að sjálfboðaliði á vegum Villikatta hafi farið og skannað köttinn og náð sambandi við eiganda.

„Eigandi samkvæmt örmerki lét hann frá sér fyrir nokkrum árum og núverandi eigandi týndi honum fyrir 2 árum. Í tvö ár hefur hann búið á götunni með hjálp fólks í hverfinu.

Þegar núverandi eiganda var sagt að hann væri fundinn og þyrfti læknisaðstoð, þá hafði hún engan áhuga og vildi ekki fá hann aftur.“

Í færslunni er bent á að hann hafi bara verið þriggja ára þegar hann þurfti að fara að bjarga sér sjálfur. Er fólk minnt á ábyrgðina sem fylgir því að eiga gæludýr, ekki megi gleyma því að kettir lifi í 15 til 20 ár.