„Þessar skerðingar hjá Tryggingastofnun eru úr öllu hófi,“ segir Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og doktor í lífeyrissjóðsmálum, í samtali við Fréttablaðið í dag.
Blaðið greinir frá því að fjöldi Íslendinga fái högg um næstu áramót þegar ný lög frá Alþingi um lífeyrissjóði skerða greiðslur frá Tryggingastofnun.
Einn þeirra er hálfsjötugur tæknifræðingur hjá Almenna lífeyrissjóðnum sem hefur greitt í séreignarsjóð frá níunda áratug síðustu aldar. Hann kveðst tapa 15-20 milljónum króna vegna nýju laganna á fimmtán árum.
Frádráttur frá almannatryggingum éti upp lífeyri sem hann hefði ella fengið frá Tryggingastofnun. Hann gagnrýnir hve þessar skerðingar komi aftan að mönnum og kynning hafi verið lítil.
Fréttablaðið segir að tæknifræðingurinn hafi hugleitt að segja upp starfi sínu vegna laganna og fara þegar á eftirlaun. Fleiri sérfræðingar, svo sem læknar, hafi stofnað til séreignar með sama hætti og hann. Ef þeir hætta störfum vegna skerðinganna fylgi því afleiðingar. Kveðst hann ætla að taka út séreignarsjóð þótt það kosti milljónir í hátekjuskatt.