Idol stjörnu­leit snýr aftur

Stöð 2 til­kynnir með stolti að leitin að næstu Idol stjörnu Ís­lands er hafin. Þetta kemur fram í til­kynningu.

Idol þættirnir hafa verið sýndir út um allan heim síðustu tuttugu ár við gríðar­legar vin­sældir og margar af skærustu stjörnum tón­listar­heimsins hafa stigið sín fyrstu skref þar.

Þór­hallur Gunnars­son, dag­skrár­stjóri Stöðvar 2, segir tíma þáttarins alls ekki liðinn í sam­tali við Frétta­blaðið.

„Nei, alls ekki. Við erum bara hrika­­lega spennt. Við höfum líka fengið við­­brögð við þessu.“

Stöð 2 segist hvetja alla á­huga­sama á aldrinum 16 til 30 ára að senda inn mynd­band með söng­prufu. Idol lestin mun einnig verða á ferðinni í leit að hæfi­leika­fólki um landið í sumar. Nánari dag­setningar verða aug­lýstar síðar.

Dóm­nefndin verður skipuð nokkrum af skærustu stjörnum ís­lenskrar tón­listar í dag og við kynnum þau til leiks á næstu dögum. Tón­listar­stjórn þáttanna verður í höndum Magnúsar Jóhanns Ragnars­sonar sem stýrir einnig hljóm­sveit þáttanna.