Icelandair segir flug­freyjur hafa hafnað loka­til­boðinu – „Mikil von­brigði,“ segir Bogi

Icelandair segir að Flug­freyju­fé­lag Ís­lands hafi hafnað loka­til­boði fé­lagsins um nýjan kjara­samning. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu sem Icelandair hefur sent frá sér.

„Icelandair lagði í fyrra­dag fram nýtt til­boð að kjara­samningi til Flug­freyju­fé­lags Ís­lands (FFÍ). Til stóð að funda hjá Ríkis­sátta­semjara seinni­partinn í gær en að ósk samninga­nefndar FFÍ var fundi frestað til hálf níu í morgun. Eftir að FFÍ lagði fram til­lögur sem ræddar voru í morgun í­trekaði Icelandair loka­til­boð sitt sem tók mið af þeirri um­ræðu sem fór fram, að því marki sem fé­lagið treysti sér til. Í kjöl­farið hafnaði samninga­nefnd FFÍ til­boði Icelandair,“ segir í til­kynningunni.

Að mati Icelandair eru til­lögur FFÍ þess eðlis að samningurinn fari í kjöl­farið langt frá þeim mark­miðum sem sett voru í kjara­við­ræðum fé­lagsins við stéttar­fé­lög flug­stétta, en Icelandair hefur þegar gert lang­tíma­samninga við Fé­lag ís­lenskra at­vinnu­flug­manna (FÍA) og Flug­virkja­fé­lag Ís­lands (FVFÍ).

„Þeir samningar kveða í megin­at­riðum á um sveigjan­leika og við­bót við vinnu­skyldu og styðja þar með við mark­mið Icelandair Group um að auka sam­keppnis­hæfni fé­lagsins á al­þjóða­markaði en á sama tíma verja ráð­stöfunar­tekjur starfs­fólks og tryggja því gott starfs­um­hverfi.“

Í til­kynningu Icelandair segir að til­boðið sem samninga­nefnd FFÍ hafnaði hafi inni­haldið eftir­gjafir frá fyrra til­boði Icelandair sem áttu að koma til móts við þau sjónar­mið fé­lags­manna sem upp komu eftir síðasta til­boð Icelandair.

„Til­boðið fól meðal annars í sér hækkun allra grunn­launa, með sér­stakri á­herslu á lægstu laun, val um starfs­hlut­fall, að flug­stunda­há­mörk innan mánaðar væru færð niður, auk þess sem skorður voru settar um há­marks­fjölda laus­ráðinna flug­freyja og flug­þjóna.“

Segir að öllu ó­breyttu verði ekki lengra komist í við­ræðunum.

Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelandair, lýsir von­brigðum með niður­stöðuna í til­kynningunni.

„Það eru mikil von­brigði að Flug­freyju­fé­lag Ís­lands hafi hafnað til­boði okkar. Þetta var okkar loka­til­boð og byggir það á sama grunni og þeir samningar sem gerðir hafa verið við stéttar­fé­lög flug­manna og flug­virkja. Í til­boðinu eru fólgnar grunn­launa­hækkanir, aukinn sveigjan­leiki varðandi vinnu­tíma en á sama tíma tryggir það sam­keppnis­hæfni og sveigjan­leika Icelandair. Því miður verður ekki lengra komist í við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Ís­lands og þurfum við nú að skoða aðrar leiðir. Við ætlum okkur að koma fé­laginu í gegnum þær krefjandi að­stæður sem nú ríkja og styrkja rekstur þess til fram­tíðar.”