Icelandair flýgur til 11 á­fanga­staða frá 15. júní

Icelandair ætlar að hefja flug til 10 á­fanga­staða þann 15. júní næst­komandi, eða á sama tíma og far­þegum sem koma til landsins verður gefinn kostur á að gangast undir skimun.

Morgun­blaðið fjallar um þetta í dag en að undan­förnu hefur Icelandair að­eins flogið til þriggja á­fanga­staða; London, Stokk­hólms og Boston.

Þessar borgir verða á­fram í boði en við bætast sjö: Kaup­manna­höfn, Ber­lín, Munchen, Amsterdam, Osló, Zurich, Frankfurt og París.

Birna Ósk Einars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sölu- og þjónustu­sviðs Icelandair, segir við Morgun­blaðið að horft sé til tveggja vikna í senn í á­ætlana­gerð. Hún segir að 15 þúsund króna skimunar­gjald hafi haft sitt að segja og eitt­hvað hafi verið um­af­bókanir.

„Því miður hefur verið svo­lítið um að Danir hafi af­bókað sig og svo hafa komið af­bókanir frá stórum þýskum hópum sem áttu eldri bókanir hingað,“ segir hún.