„Það er styttra í að bæjarstjóri kveðji þrjúhundruðasta Hafnfirðinginn sem flytur úr bænum árið 2020 en að bjóða þrjátíuþúsundasta íbúann velkominn upp á nýtt,“ segir Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði, í aðsendri grein á Vísi.
Jón Ingi viðrar þar áhyggjur sínar af íbúafækkun í Hafnarfirði og rifjar upp í því samhengi að innan við ár sé liðið síðan Rósa Guðbjartsdóttir bauð íbúa númer 30 þúsund velkominn í sveitarfélagið. Nú er svo komið að íbúum hefur fækkað og eru þeir nú aftur komnir undir 30 þúsund.
Jón Ingi segir að undanfarin ár hafi verið mikill vaxtartími á höfuðborgarsvæðinu þar sem íbúum á suðvesturhorni landsins hefur fjölgað mikið. Það sem af er þessu ári hafi íbúum Hafnarfjarðar þó fækkað um 0,7%.
„Þann 31. október 2019 bauð bæjarstjóri þrjátíuþúsundasta íbúann velkominn með viðhöfn en síðan þá hefur bæjarbúum aftur fækkað og eins og staðan er núna munum við þurfa að fagna þeim áfanga aftur. Þetta er áhyggjuefni af nokkrum ástæðum,“ segir Jón Ingi og nefnir til dæmis árangur Hafnarfjarðar í skipulags- og byggingarmálum.
„Hefðum við ekki flotið sofandi að feigðarósi í skipulags- og byggingarmálum má ætla að í bænum væru þrjú þúsund nýir Hafnarfirðingar sem skiluðu um tveimur og hálfum milljarði í auknar tekjur árlega. Það er ekki fjarri þeirri upphæð sem meirihlutinn mun sætta sig við sem einskiptis söluhagnað af bréfum bæjarfélagsins í HS Veitum,“ segir hann.
Hann segir að þessi tíðindi setji óvönduð vinnubrögð meirihlutans í nýtt samhengi.
„Þegar honum var bent á það hversu mikla holu hann hafði grafið sig í var hlaupið af stað og leitað að einhverri skyndilausn til þess að grafa sig úr vandanum. Lausnin var sú að falla frá vandaðri undirbúningsvinnu við rammaskipulagið á Hraun Vestur og bjóða einum lóðarhafa brunaafslátt af öllum gæðakröfum í þeirri von að sú uppbygging myndi fela að einhverju leiti úrræðaleysi undanfarinna ára,“ segir Jón Ingi og bætir við að útlitið sé ekki endilega bjart.
„Það er styttra í að bæjarstjóri kveðji þrjúhundruðasta Hafnfirðinginn sem flytur úr bænum árið 2020 en að bjóða þrjátíuþúsundasta íbúann velkominn upp á nýtt. Hvort viðkomandi fái blómvönd og krúttkörfu er ekki vitað.“