„Það er ljóst, ef horft er í skattframtöl, að fjölmargir Íslendingar hafa efni á að eiga svona íbúðir,“ segir Gunnar Thoroddsen, eigandi og stjórnarformaður hjá Íslenskum fasteignum, í viðtali í Morgunblaðinu í dag.
Við Austurhöfn í miðborg Reykjavíkur eru nú til sölu íbúðir sem hafist var handa við að byggja árið 2016. Nú þegar hafa selst íbúðir fyrir um milljarð. Ein íbúðin, horníbúð á efstu hæð við Bryggjugötu, er rúmlega 350 fermetrar og kostar ríflega hálfan milljarð – nokkuð meira en hinn venjulegi Íslendingur á að venjast á fasteignamarkaðnum.
Gunnar segir að markhópurinn fyrir svona íbúð séu innlendir og erlendir kaupendur og ljóst sé að fjölmargir Íslendingar hafi efni á að kaupa svona íbúð – ef horft er á skattframtölin.
„Þá sýna fjárfestingar á höfuðborgarsvæðinu og víða um landið að fólk er reiðubúið að ráðstafa miklum fjármunum í fasteignir. Við höfum alltaf séð fyrir okkur að markhópurinn fyrir þessa tegund íbúða sé jafnframt efnaðir útlendingar,“ segir Gunnar.
Lúxusinn sem stendur íbúum til boða á sér líklega engar hliðstæður hér á landi. Þannig munu íbúar hafa aðgang að þjónustufulltrúa átta tíma á dag alla virka daga vikunnar. Þjónustufulltrúinn getur hlaupið í ýmis verk; hjálpað til við að bera húsgögn og tekið á móti gestum. Þá mun íbúum bjóðast þjónusta Reykjavík Edition-hótelsins og fengið sendan morgunmat, fengið akstur til og frá flugvelli, fengið starfsfólk til að sjá um þrif og fengið aðgang að laugum og gufubaði svo eitthvað sé nefnt.
Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að fyrstu íbúarnir hafi komið sér fyrir á svæðinu fyrir helgi, en um er að ræða sex hús með samtals 71 íbúð. Að sögn Gunnars er fermetraverðið í sumum tilfellum undir milljón króna og þá kosti margar íbúðir í húsunum undir 100 milljónir króna.