Íbúð í mið­borginni vekur at­hygli: Ísbirnir og jólatré á hvolfi – „Þarna býr kall“

Ó­hætt er að segja að íbúð ein sem er til sölu í mið­borg Reykja­víkur hafi vakið at­hygli á sam­fé­lags­miðlum, en um er að ræða íbúð í húsi við Báru­götu 4 sem er til sölu hjá Mið­bæ fast­eigna­sölu.

Alls eru þrjár í­búðir í húsinu sem selst í heilu lagi. Húsið er býsna fal­legt, byggt 1925 og hafa eig­endur reynt að halda húsinu sem næst upp­runa­legri mynd.

Í einni af í­búðum hússins virðist ein­hver ævin­týra­maður búa ef marka má myndir úr í­búðinni. Að minnsta kosti einn upp­stoppaður ís­björn er í íbúðinni og þá má sjá ís­bjarnar­skinn á gólfinu. Haus af vísundi hangir uppi á vegg og þá vekur at­hygli að jóla­tré hangir niður úr loftinu – á hvolfi. Fleiri upp­stoppuð dýr eru í í­búðinni, þar á meðal refur.

At­hygli var vakin á í­búðinni á Twitter og í einum þræði á sam­fé­lags­miðlinum vin­sæla segir ein ágæt kona ein­fald­lega: „Þarna býr kall“

Myndir má sjá hér að neðan: