Segja má að auglýsing ein sem birtist í Facebook-hópnum Brask og brall (allt leyfilegt) í morgun hafi vakið athygli. Um er að ræða íbúð á jarðhæð í Gerðunum, hverfi 108, með tveimur herbergjum, að því er segir í auglýsingunni, baðherbergi og samliggjandi stofu og eldhúsi.
Ekki kemur fram hversu stór umrædd íbúð er eða hvort hugsanlegir leigjendur geti fengið húsaleigubætur.
Eins og sést í athugasemdum sem skrifaðar hafa verið við færsluna þykir mörgum íbúðin ekki ýkja spennandi, að minnsta kosti ekki ef marka má þær myndir sem fylgja og þá staðreynd að leigusalinn vill 190 þúsund krónur á mánuði fyrir hana.
„What? This sh.t for 190þ? You lost your mind!,“ segir í einni athugasemd sem á fjórða tug manna hefur lækað. Í annarri athugasemd segir: „Glætan að einhver fari að leigja þessa íbúð á þessu verði.“ Og í enn annarri segir: „Þetta er ógeðslegt, þvílíkt okur.“
Sá sem setti auglýsinguna inn hefur ekki svarað þeirri gagnrýni sem fram hefur komið.
Eins og landsmenn vita hefur leiguverð víða hækkað mjög á undanförnum árum og stóð vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu í 200,8 stigum í ágúst. Hefur hún hækkað um 1,4% síðustu 12 mánuði.
Samkvæmt vef Þjóðskrár Íslands var meðalleiguverð á þriggja herbergja íbúð 2.600 krónur í Reykjavík ef litið er til svæðisins milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar þar sem íbúðin er. Það var hins vegar 2.800 krónur á fermetra í Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes. Þegar komið er í úthverfin og í nágrannasveitarfélög Reykjavíkur lækkar verðið.
Meðfylgjandi eru skjáskot úr auglýsingunni.