Íbúar vöknuðu upp með andköfum við þrumur og eldingar

Þrumur og eldingar heyrðust víðast hvar á landinu í nótt og vöktu landsmenn víðast hvar.

Miklar umræður má nálgast í íbúahópum, meðal annars í Breiðholti og efri byggðum Kópavogs. Svo virðist vera sem að rafmagni hafi slegið út í efri byggðum Kópavogs miðað við lýsingar í íbúahópum á Facebook.

„Eftir þrjár þrumur stóð ég við gluggann til að sjá þá fjórðu, en í staðinn varð ég vitni af því þegar raf­magnið fór af öllu hverfinu,“ skrifar íbúi í íbúahópi Linda-,Sala-, Kóra-, Þinga- og Vatns­enda­hverfis í Kópavogi.

Þá spyr íbúi í íbúahópi Breiðholts: „Hvað er í gangi? Brjáluð ljósaflash og drunur.“ Viðkomandi segist almennt vera róleg og ekkert að æsa sig.

„En ég þeyttist upp úr rúminu í panik og faldi mig á bakvið vegg. Ca. 15 mín áður heyrði ég í háværri flugvél. Var handviss um að nú hefði einhver bombað okkur.“