Íbúar Laugarneshverfis kvarta undan ólykt: „Þetta er bara viðbjóður“

Íbúar í Laugarneshverfi eru margir hverjir orðnir leiðir á stækri ólykt sem leggur stundum yfir hverfið.

Fram hefur komið að ólyktin komi frá Fóðurblöndunni en í desember síðastliðnum var greint frá því að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefði krafist þess að fyrirtækið gripi til ráðstanfa til að koma í veg fyrir að lyktin leggi yfir byggð í nágrenninu.

„Ég get ekki orða bundist lengur yfir þessari vondu og stæku lykt sem leggst yfir hverfið þessa dagana og er hún með versta móti þennan morguninn,“ segir íbúi í færslu sem birtist á Facebook-hópi íbúa. Bætir hann við að lyktin hafi verið viðvarandi í mörg ár.

„Þetta er bara viðbjóður,“ segir í íbúi í annarri athugasemd og í enn annarri segir íbúi: „Hún var eitthvað extra stæk í morgun.“

Undir færslunni hvetja aðrir íbúar til þess að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur verði látið vita af málinu.

Fjallað var um málið á vef Vísis þann 18. desember síðastliðinn en í fréttinni kom fram að tilkynningum um vonda lykt hefði fjölgað mjög síðustu mánuði. Haft var eftir forstjóra Fóðurblöndunnar að engin breyting hefði orðið á starfseminni og því gæti hann ekki útskýrt aukinn fjölda tilkynninga.

„Ég kann enga skýringu á því nema ef vera skyldi að þessi lyktarmengun geti verið frá annarri starfsemi í nágrenni við okkur. Við vonum að minnsta kosti að við berum ekki einir ábyrgð á þessum vanda enda hefur ekkert breyst í starfsemi okkar síðustu mánuðina,“ sagði Eyjólfur Sigurðsson, forstjóri fyrirtækisins, í frétt Vísis.