Í­búar í Vestur­bænum heyra dular­full hljóð: „Ég hef heyrt þetta líka“

Í­búar í Vestur­bænum segjast sumir hverjir heyra dular­full hljóð á næturnar. Í síðustu viku var tölu­vert fjallað um hljóð sem heyrðist á Akur­eyri sem gerði í­búum þar lífið leitt.

Í Face­book-hópi Vestur­bæinga segist einn hafa heyrt hljóðið, mögu­lega það sama eða að minnsta kosti sam­bæri­legt og á Akur­eyri, nokkrum sinnum. Segir sá sem byrjar um­ræðuna að hljóðið virðist koma frá höfninni og bætir við að það hafi haldið fyrir henni vöku.

Þó nokkrar at­huga­semdir hafa verið skrifaðar við færsluna og taka margir undir að þeir hafi heyrt um­rætt hljóð. „Ég hef heyrt þetta líka,“ segir einn á meðan annar bætir við: „Hef heyrt þetta líka.“ Þriðji bætir við: „Já, heyri drunur líka um nætur. Kemur í átt frá höfninni.“

Enginn virðist vera með svör á reiðum höndum um upp­runa hljóðsins en grunur leikur á að hljóðið sem gerði í­búum á Akur­eyri lífið leitt hafi komið frá mastri skútu sem lá við Akur­eyrar­höfn. Sér­fræðingur heil­brigðis­eftir­lits Norður­lands eystra sagðist að minnsta kosti sann­færður um það í sam­tali við Morgun­blaðið.

Þannig hafi hann tvisvar farið í eftir­lits­ferð að skútunni og í bæði skiptin hafi hann heyrt hljóðið.