Íbúar í Tunguseli í Reykjavík eru miður sín eftir að mannakúkur var skilinn eftir í forstofunni þeirra og íbúalistinn svo nýttur til skeininga. Fréttablaðið greinir frá.
Blaðið ræðir við íbúa sem segir það hafa verið ófagra sjón sem blasti vi við honum þegar hann var á leið út úr húsi með börnin í morgun.
„Ég býst við að þetta sé einhver manneskja í annarlegu ástandi og efa það kannski að þetta hafi verið planað.“
Fréttin í heild sinni má lesa hér.