Fjörugar umræður fóru fram í Facebook-hópi íbúa miðborgarinnar vegna bréfs sem að minnsta kosti hluti íbúa fékk inn um lúguna til sín. „Þetta var að koma inn um lúguna hjá mér. Um hvað fjallar þetta?,“ segir málshefjandi umræðunnar og birtir mynd af bréfinu.
Í bréfinu er fundið að því að skemmtanalífið í miðborginni sé komið á fullt aftur eftir Covid-faraldurinn með tilheyrandi ónæði fyrir íbúana.
„Þá er Kóvid-kyrrðin rofin og næturlífið komið á skrið með öllum sínum fylgifiskum sem flestir eru ömurlegir fyrir okkur sem hér búum. Við viljum standa fyrir andófi og reyna með öllum ráðum að endurheimta svefnfrið þann sem við eigum rétt á. Það gerum við með því að reka öflugan áróður, safna undirskriftum, fara í mótmælagöngu, herja á pólitíkusa og ef um allt þrýtur málsókn. Við erum búin að opna Facebook-síðuna Kjósum hávaðann í burtu og ég hvet ykkur til að ganga í þann hóp,“ segir í bréfinu en neðst má finna nafn Hannesar Sigurðssonar.
Í bréfinu eru svo tíundaðar ýmsar kröfur; svo sem að yfirvöld framfylgi því að hljóðvist á krám og skemmtistöðum sé með þeim hætti að íbúar verði ekki fyrir ónæði, ella verði viðkomandi staðir látnir sæta allt að 500 þúsund króna dagsektum og jafnvel sviptir veitingaleyfi. Þá verði opnunartími bara og kráa í miðborginni styttur til muna.
Sitt sýnist hverjum um efni bréfsins en hátt í 100 athugasemdir hafa verið skrifaðar við færsluna.
„Afhverju að flytja í miðbæinn ef þú vilt ekki búa nálægt veitingastöðum/skemmtistöðum?,“ segir í einni athugasemd. Í annarri segir: „Það hefur verið skemmtanahald í miðbænum frá því að ég man eftir mér. Ég valdi það fyrir 28 árum að flytja í miðbæinn og þó ég sé hættur að skemmta mér eins og ég gerði áður get ég ekki farið að skammast yfir hávaðanum núna. Ég hef engan rétt á því. Frekar flyt ég í rólegra hverfi.“
Aðrir hvetja þó til þess að málið sé rætt án ofsa og benda á hvaða leiðir aðrar borgir hafa farið.
„Margar stórborgir París London Róm og fleiri hafa flutt alla klúbba (með háværa tónlist....) í jaðar borganna sem hafa rýmri opnunartíma en kaffihús og barir í miðbæ opið skemmur (1-2).. það þykir ekkert tiltökumál. Mér finnst að fólk geti rætt svona málefnalega en ekki með skítkast.“