Í­búar í Hvassa­leitinu vakna við gríðar­legt tjón í morgun: „Skrýtnasta sem ég hef séð“

Í­búar í Hvassa­leitinu vakna ekki við fagra sjón í morgun eftir að 800 milli­metra kalda­vatns­lögn fór í sundur um tíu­leytið í gær­kvöldi. Vatn flæddi inn í hús, kjallara, bíl­skúra og bíla í Hvassa­­leitinu í nótt

„Þetta er náttúru­lega rosa­legt tjón,“ segir Svava Grétars­dóttir íbúi í Hvassa­leiti í sam­tali við Frétta­blaðið.

„Upp­tökin eru við hliðina á blokkinni okkar þannig það flæddi mjög mikið. Ég held það hafi verið hæðst um 1,20 m sem að flæddi inn á jarð­hæðina. Það eru geymslur, það eru auka­her­bergi sem allir eiga og svo eru þvotta­húsin þau eru alveg ónýt,“ bætir Svava við.

Starfs­mönnum Veitna tókst að skrúfa fyrir lögnina um ellefu í gær og tóku þeir við af slökkvi­liðinu um mið­nætti.

„Við sluppum að öðru leyti á­gæt­lega. Svo veit maður ekki hvernig fór með bílana sem lentu illa í þessu við Kringluna,“ segir Svava en bíla­stæðið við blokkina hennar slapp.

„Bíla­stæðið okkar er fyrir ofan blokk en þetta gerist við hliðina á blokkinni og lekur niður. En það var bara stöðu­vatn. Ég hefði getað verið á kajak í bak­garðinum í gær. Þetta var það skrýtnasta sem ég hef séð,“ segir Svava.

Spurð um hvernig staðan er núna segir Svava að það séu þurrkar um allt að reyna tæma vatnið og að starfs­menn Veitna höfðu verið að í alla nótt.

„Það voru mikil læti til þrjú í nótt og svo hægt að leggja sig að­eins. Fyrst og fremst eru þetta hlutir sem eru að skemmast þetta er ekki það dramatískt tjón. Þetta hefði verið verra ef það hefðu verið í­búðir á neðstu hæðinni, segir Svava.

„Það er fyrst og fremst það sem skiptir máli í þessu að þetta hafi ekki verið í­búðar­hús­næði frá fólki sem var að skemmast,“ segir Svava að lokum.