Íbúar í Hlíðunum segja sitt hverfi afa gleymst og eru sérstaklega ósáttir með ástandið í Lönguhlíð.
600 hafa ritað nafn sitt á undirskriftarlista þar sem þess er krafist að borgaryfirvöld fari að sinna Lönguhlíð.
Fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þar er meðal annars rætt við Jökul Sólberg Auðunsson íbúa sem óskar eftir aðgerðum.
„Það var svona samhljómur í fólki að okkur líður svolítið eins og gatan okkar hafi orðið aðeins út undan. Við erum með fyrstu hjólastíga Reykjavíkur sem eru orðir ansi úreltir í hönnun. Fólk er með kaffihús efst á óskalistanum og kannski eitt og annað,“ segir Jökull.
Þá segir Jökull að hámarkshraðinn í Lönguhlíð sé 50 kílómetra hraði en íbúum þyki hann of hár, hann ætti að vera 30.
„Langahlíð er miðjan í hverfinu og við horfum til Vesturbæjar og annarra hverfa sem hafa fengið kaffihús. Og við erum bara öfundsjúk út í þau hverfi,“ segir Jökull.