Í­búar hvattir til að læsa húsum sínum

„Við viljum í­treka við íbúa Fjalla­byggðar að huga að verð­mætum sínum og geyma slíka hluti ekki fyrir allra augum. Enn­fremur að læsa húsum sínum og geymslum vegna í­trekaðra þjófnaða og inn­brota á svæðinu.“

Þetta segir í til­kynningu frá Lög­reglunni á Norður­landi eystra nú í morguns­árið. Eins og greint var frá í gær rápaði maður með skíða­grímu fyrir and­litinu á milli húsa á Siglu­firði í fyrri­nótt þar sem hann gerði hús­eig­endum bylt við á­samt því að hafa verð­mæti á brott með sér.

Sigur­björn Þor­­geirs­­son, lög­­reglu­­maður í Fjalla­byggð, sagði í sam­tali við Trölla að í­búar bæjarins þyrftu nú að horfa fram á nýjan raun­veru­­leika þar sem ekki væri lengur ó­­hætt að hafa hús sín ó­­læst. Ekki var um að ræða inn­brot þar sem húsin voru ó­­læst og flokkast það því sem hús­brot.

Manninum var lýst sem lág­­vöxnum og dökk­­klæddum með dökka hettu sem huldi and­lit sitt að mestu.

„Málin eru í vinnslu og vonandi tekst okkur að upp­lýsa þessa þjófnaði en kæru í­búar Fjalla­byggðar, verið á varð­bergi. Þetta gildir auð­vitað fyrir alla okkar les­endur, að huga að verð­mætum, læsa húsum þegar farið er af bæ. Með bestu kveðju og eins og fyrr, erum við öll AL­MANNA­VARNIR,“ segir í til­kynningu lög­reglunnar.

Sæl öll. Við viljum ítreka við íbúa Fjallabyggðar að huga að verðmætum sínum og geyma slíka hluti ekki fyrir allra...

Posted by Lögreglan á Norðurlandi eystra on Miðvikudagur, 7. október 2020