Íbúar í Reykjanesbæ eru gáttaðir á skipulagningu og utanumhaldi á öryggismálum á Ljósanæturballinu sem fram fór í Hljómahöllinni á Ljósanótt á laugardagskvöld.
Fréttablaðið greinir frá málinu og hefur jafnframt eftir Úlfari Lúðvíkssyni, lögreglustjóranum á Suðurnesjum að lögreglan sé með skipulagningu til skoðunar.
Að sögn gesta, sem rætt hafa málin á Facebook hópi Reykjanesbæjar, var mikill troðningur inni í húsinu og lítið af starfsmönnum. Maður hafi verið við mann og varla hægt að komast inn né út fyrir mannmergðinni.
„Ja dottir min og vinkona komust inn a endanum enn var svo heitt inni og of mikill fjöldi að dottir min varð hjalpa vinkoni sinni ut til henni myndi liða betur áður enn leið yfir hana sagði hun litið loft og allt of heitt,“ segir íbúi.
Annar segir: „Ég bara beið eftir að einhver myndi byrja þessa umræðu! Þetta var bara algjörlega fáránlegt! Ekki hægt að komast inn og alltof mikið af fólki inni, hvernig hefði það farið ef eitthvað hefði komið uppá, þvílíki troðningurinn.“
Þá komust færri að en vildu og þurftu margir frá að hverfa. „Hef heyrt að mjög illa hafi verið að þessu staðið. Held að margir eigi kröfu á endurgreiðslu.“
Frétt Fréttablaðsins um málið.