Í­búar einka­rekinna hjúkrunar­heimila lík­legri til að deyja vegna CO­VID-19

Í­búar á einka­reknum hjúkrunar­heimilum sem rekin eru í hagnaðar­skyni eru lík­legri til að deyja af völdum CO­VID-19 en í­búar hjúkrunar­heimila sem ekki eru rekin í hagnaðar­skyni eða eru ríkis­rekin. Þetta er að minnsta kosti raunin í Ontario, fjöl­mennasta fylki Kanada.

Tor­onto Star greinir frá þessu en blaðið skoðaði sér­stak­lega dánar­tíðni á hjúkrunar­heimilum fylkisins. Tæp­lega 20 þúsund til­felli veirunnar hafa greinst í Ontario og dauðs­föll eru 1.540 sam­kvæmt nýjustu tölum.

Í um­fjöllun blaðsins kemur fram að CO­VID-19 far­aldurinn hafi látið tals­vert að sér kveða á hjúkrunar­heimilum í Ontario, skiptir þá engu hvort um einka­rekin eða opin­ber hjúkrunar­heimili er um að ræða – hlut­fallið er svipað.

En þegar kemur að dánar­tíðni vekur at­hygli að hún er allt að fjórum sinnum hærri á hjúkrunar­heimilunum sem rekin eru í hagnaðar­skyni í saman­burði við þau sem ekki eru rekin í hagnaðar­skyni. Og allt að tvsivar sinnum hærri en á hjúkrunar­heimilum sem eru ríkis­rekin.

Tor­onto Star ræðir þetta við Sharleen Stewart, for­seta SEIU Healt­h­care-stéttar­fé­lagsins, en tölurnar koma henni lítið á ó­vart. Margir heil­brigðis­starfs­menn eru í fé­laginu, þar á meðal starfs­menn opin­berra hjúkrunar­heimila og einka­rekinna.

Hún segir að reynsla fé­lags­manna sé sú að hjúkrunar­heimili sem rekin eru í hagnaðar­skyni búi ekki yfir jafn góðri þjónustu og önnur heimili. Þannig sé færra starfs­fólk á þessum heimilum og hluta­starfs­menn séu margir. Þá séu fleiri ó­fag­lærðir starfs­menn í vinnu á um­ræddum heimilum.