Íbúar Blönduóss í losti eftir fordæmalausa skotárás

Íbúar Blönduóss vöknuðu við hrikalegar fréttir í morgun.

Skotárás var framan í morgun á heimahúsi við Hlíðarbraut. Tveir einstaklingar eru látnir, annar þeirra skotmaðurinn sem skaut einstakling til bana í húsinu. Einn var særður, fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Tveir eru í haldi lögreglu. Lögreglan hefur ekki greint frá því hvernig aðilarnir í haldi tengjast málinu og ekki kemur fram hvernig skotmaðurinn sjálfur lést.

Fréttablaðið ræddi við Birgi Jónasson, lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, sem segir að um alvarlegt tilvik sé að ræða. Málið sé á viðkvæmu stigi og þegar skotárás er framin í litlu bæjarfélagi þurfi sterk bein til að takast á við slíkt voðaverk.