Banaslys varð við Framhaldsskólann á Laugum í Reykjadal í gær þegar 19 ára karlmaður varð fyrir bíl.
Tilkynning um slysið barst klukkan 14:03 í gær og þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var maðurinn meðvitundarlaus og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur.
Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Harald Bóasson, íbúa á Laugum, sem segir fregnir af slysinu hafa haft mikil áhrif á samfélagið í Reykjadal.
„Þetta var ákaflega hæglátur og góður strákur sem allir dáðu og dýrkuðu, þannig að þetta er mikið áfall fyrir alla,“ segir Haraldur.
Nokkrir nemendur úr skólanum urðu vitni að slysinu og var því áfallahjálparteymi Rauða krossins virkjað til að hlúa að þeim. Rannsókn á tildrögum slyssins eru á frumstigi.