Í varðhaldi eftir að hafa hótað að sprengja fjölmargar byggingar hér á landi

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að karlmaður, sem meðal annars er grunaður um sprengjuhótanir, sæti varðhaldi allt til 11. maí næstkomandi.

Í úrskurði Landsréttar kemur fram að maðurinn hafi fengið alþjóðlega vernd hér á landi árið 2018 eftir að hafa komið til landsins 2017. Á árunum 2017 til 2021 hefur lögregla haft til meðferðar alls 91 tilvik þar sem viðkomandi er grunaður um refsiverða háttsemi.

Maðurinn var handtekinn við Ráðhús Reykjanesbæjar þann 16. mars síðastliðinn vegna gruns um að hafa fyrr um daginn sent tvo tölvupósta á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, þar sem fram kom að sprengiefni væri í byggingunni og að rýma ætti hana.

Þennan saman dag fékk ríkissaksóknari sams konar sprengjuhótun og lögreglustjórinn á Suðurnesjum úr sama tölvupóstfangi.

Daginn áður, þann 15. mars, fékk lögregla tilkynningu frá manni sem kvað viðkomandi hafa ráðist að sér með líflátshótunum í Firði í Hafnarfirði. Þann 10. Mars fékk Alþingi svo tölvupóst þar sem fram kom á ensku að sprengja myndi springa þá þegar.

Framkvæmd hafi verið sprengjuleit af sprengjuleitarsérfræðingum, sérsveit og hundi. Hafi hótunin verið talin kennimark viðkomandi, en hann sé grunaður um ítrekaðar sambærilegar sprengjuhótanir, bæði árið 2021 og 2022.

Maðurinn var svo handtekinn þann 7. mars eftir hótanir í afgreiðslu Ríkissaksóknara. Hótaði hann tilteknum opinberum starfsmanni lífláti í tölvupósti daginn áður en hann mætti í móttöku stofnunarinnar og hafði uppi hótanir. Þann 5. mars mætti maðurinn á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi og hótaði því að sprengja spítalann ef hann fengi ekki afgreiðslu á innan við 45 mínútum.

Héraðssaksóknari taldi nauðsynlegt að stöðva brotastarfsemi mannsins, sérstaklega þar sem brotahrina hans hafi ógnað hagsmunum fjölmargra, bæði einstaklinga og opinberra stofnana. Voru taldar líkur á að hann myndi halda brotastarfsemi sinni áfram væri hann frjáls ferða sinna.

Undir þetta tók Landsréttur og verður maðurinn í gæsluvarðhaldi til 11. maí næstkomandi hið minnsta.