Í mál við íslenska ríkið: „Við erum á endastöð"

Fjölskyldur tveggja barna sem fæddust með skarð í gómi ætla í mál við íslenska ríkið þar sem Sjúkratryggingar Íslands neita að endurgreiða kostnað við tannlækningu og tannréttingar. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Ragnheiður Sveinþórsdóttir, móðir drengs sem fæddist með skarð í gómi, segist nauðbeygð til að sækja ríkið til saka. Sonur hennar hefur gengist undir fjölmargar læknisaðgerðir til að laga góminn en þarft að mati sérfræðinga á frekari aðgerðum að halda.

Sjúkratryggingar Íslands segja fæðingargalla barna sem fæðast með skarð í gómi ekki nógu alvarlegan til að réttlæta greiðsluþátttöku. Því er Ragnheiður ósammála. „Ef þessi börn fá ekki þessa meðferð hefur það bæði andlegar og líkamlegar afleiðingar.“

Sjá einnig: „Höfum þurft að borga alla meðferð sonar okkar úr eigin vasa“

Aukin framlög boðuð

Fyrir tæpu ári síðan tilkynnti heilbrigðisráðherra að á næstu tveimur árum yrðu framlög til barna sem fæðast með skarð í góma aukið. Svandís Svavarsdóttir sagði að ákveðið öryggisnet yrði sett á laggirnar fyrir fjölskyldur barna sem fæðast með skarð í góm.

Fyrsta skrefið átti að vera að endurgreiðsla vegna tannlækninga og tannréttinga meðal barna með þessi einkenni. Ragnheiður var vongóð um að fjölskyldan hlyti slíka aðstoð en fékk nýlega höfnun á aðstoð enn einu sinni.

„Meðferðirnar á þessum örfáu börnum, það er talað um að svona barn fæðist annað hvert ár á Íslandi, væri án alls efa lægri en kostnaðurinn sem hefur hlotist af þessu máli,“ sagði Ragnheiður sem hefur um árabil barist fyrir aukinni aðstoð fyrir son sinn.

Ekki nóg

„Við erum á endastöð. Við erum búin að vinna í þessu, við fjölskyldan í fimm ár og það er önnur fjölskylda sem er búin að vera átta ár að vinna í þessu. Og börnin eru að verða það gömul að við sjáum ekki annan kost en að einfaldlega stefna,“ sagði Ragnhildur í samtali við RÚV.

Um væri að ræða lögbundinn rétt barna. „Þetta er alvarlegur fæðingargalli. Og við því miður, þrátt fyrir góðan vilja ráðherra, og við höfum séð að hún er búin að vera að vinna í okkar málum, þá hefur það bara ekki verið nóg.“