Í á­falli með verða­lagið og birtir kvittunina: „Þetta er ekki eðli­legt“

Linda Björk Guð­jóns­dóttir snæddi á Café Mílanó með manni sínum í gær. Hún og maður hennar fengu sér sitt­hvor­an kaffi­bollan á­samt smur­brauði og roast­beef sam­loku. Alls kostaði þetta næstum 8 þúsund krónur og birtir hún kvittunina.

„Ég fór með Sigur­björn Gests­­son á #ca­femila­no , við fengum okkur kaffi og smur­brauð, það var bara fínt EN það kostaði 7760 krónur. Er þetta bara eðli­­legt verð? 790 kr fyrir kaffi­­bolla (bara uppá hellt ekkert fan­cy) og 3090 kr fyrir smur­brauð sneið?“ spyr Linda alveg gáttuð á verðinu.

Fjöl­margir taka undir með Lindu og segir Sig­rún Sig­hvats­dóttir að þetta sé nýtt met í kaffi okri. Þá er nokkrir sem benda á að kaffið sé uppáhelt á staðnum.

„Kaffið allt­of dýrt en glæsi­­legu smur­brauðs­­sneiðarnar kannski á eðli­­legu verði miðað við annars staðar. Og þær eru æðis­­lega góðar. Reyndar er kaffið líka besta kaffi sem ég fæ en.. já of dýrt,“ segir Her­dís Ragna.

„Nei þetta er ekki eðli­­legt, ég og vin­­kona mín vorum vanar að hittast þarna yfir kaffi­­bolla og köku­­sneið en hættum því út af okrinu og fluttum okkur yfir í Ikea, sjáum ekkert eftir því,“ bætir Edda Karls­dóttir við.

En líf­legar um­ræður hafa verið um verð­lagið í hópnum Vertu á verði á Face­book.

Kvittunina má sjá hér að neðan.