Hvíti hesturinn í Landi og sonum

Þátturinn Lífið er lag er á dag­skrá Hring­brautar kl. 20.30 en þættirnir fjalla um stöðu, hags­muni og fram­tíðar­sýn eldri borgara á Ís­landi en þetta er 5. þáttur af 12 á þessu hausti.

Efni þáttanna er mjög blandað en þar er fyrst og fremst upp­lýsandi efni um heilsu, lífs­stíl, heil­brigði, matar­venjur og ýmis hags­muna­mál eldri borgara.

Undir lok hvers þáttar ræðir þátta­stjórnandinn Sigurður K. Kol­beins­son við þekkta Ís­lendinga sem vakið hafa at­hygli á árum áður fyrir störf sín og árangur eða fram­lag til þjóðarinnar.

Í síðustu viku var rætt við Ingi­björgu Pálma­dóttur en í kvöld er Ágúst Guð­munds­son leik­stjóri í stuttu við­tali. Hann mun segja frá fyrsta al­vöru kvik­mynda­verki sem hann stjórnaði árið 1980 en það var stór­myndin Land og synir.

Þúsundir Ís­lendinga sáu þessa kvik­mynd og flesta rak í roga­stans þegar Sigurður Sigur­jóns­son beindi hagla­byssu að hvítum fal­legum hesti sem felldur var í bíó­myndinni. En var hann felldur í raun? Því svarar Ágúst Guð­munds­son í þætti kvöldsins. Kvik­mynda­taka var í höndum Frið­þjófs Helga­sonar.