Hvetur Vöndu til að reka Aron Einar úr lands­liðinu: „Hingað og ekki lengra takk“

Vanda Sigur­­geirs­dóttir, for­­maður Knatt­­spyrnu­­sam­bands Ís­lands segist taka um­­ræðu, í tengslum við KSÍ síðustu taka, nærri sér. Lands­liðs­­fólk hefur stigið fram og sagt farir sínar ekki sléttar varðandi heiðursviður­­kenningar og kveðju­­stundir í tengslum við lands­liðs­­ferla sína og þá hefur KSÍ legið undir mikilli gagn­rýni vegna vin­áttu­­leiks ís­­lenska karla­lands­liðsins við Sádi-Arabíu.

„Ég tek um­­ræðu síðustu daga mjög nærri mér, enda hef ég, frá því að ég steig mín fyrstu skref í fót­­bolta, barist fyrir vægi kvennaknatt­­spyrnu," skrifar Vanda í færslu á sam­­fé­lags­miðinum Face­book.

„Nú eftir að ég kom til KSÍ er þessi bar­átta ekki bara á Ís­landi heldur einnig í Evrópu.“

„Það stingur mig í hjartað. Mig langar því að út­­skýra. KSÍ fylgir reglu­­gerðum sínum um að leik­­menn fái heiðursviður­­kenningar fyrir 50 og 100 leiki. Hefð er fyrir því að leik­­menn sem ná 100 leikjum fái mál­­verk sem af­hent er á árs­þingi eða við önnur há­­tíð­­leg til­­efni. Ekkert annað er í verk­­ferlum og reglu­­gerðum KSÍ um þessi mál. En hvað þá með þessar treyjur? skrifar Vanda svo.

Þó nokkrir hafa tekið máls undir færslu Vöndu meðal annars rit­höfundurinn Ás­mundur Helga­son.

„Góð skýring - takk fyrir Vanda Sigur­­geirs­dóttir. Nú máttu hætta með Aron Einar. Þá eykst jafn­réttið - sem er jú mark­miðið. Ég er búinn að fara á alla heima­­leiki karla­lands­liðsins í um 30 ár en hingað og ekki lengra takk,“ skrifar Ás­mundur.

Hægt er að lesa umm­fjöllun um færslu Vöndu hjá Frétta­blaðinu hér.