Hvers vegna ekki? Jóhanna vill eitt sundkort í allar sundlaugar landsins

„Eflaust höfum við áttað okkur enn betur á því hversu mikilvægar sundlaugarnar eru okkur eftir að þær lokuðu tímabundið vegna Covid,“ segir Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi Frjálsra með Framsókn í Hveragerði.

Jóhanna skrifar athyglisverða grein á vef Vísis þar sem hún kallar eftir því að sveitarfélög taki sig saman og bjóð upp á sundkort sem gilda fyrir allt landið.

Jóhanna segist hafa rekist á grein á dögunum eftir Guðmund Hafþórsson þar sem rætt var um mikilvægi þess að börn fari oft í sund og stundi jafnvel sund í tómstundastarfi. Sjálf æfði Jóhanna sund á yngri árum og því vel kunnug kostum þess að stunda sundið.

„Eftir að hafa lesið greinina rifjaðist upp fyrir mér hugmynd sem ég fékk fyrir nokkru um að gera sundkort í sundlaugar landsins miðlæg. Upphaflega hugmyndin var reyndar sú að nágrannasveitarfélög tækju sig saman og biðu upp á sundkort svæðisbundið. En hvers vegna ekki að taka þetta lengra og bjóða upp á sundkort sem nær yfir allt landið?“

Jóhanna bendir á að sund sé góð hreyfing sem hentar fjölbreyttum aldurshópi alla ævi.

„Sundlaugarnar hafa líka upp á svo margt að bjóða, hvort sem það er sundlaugin sjálf til að synda í, heitu pottarnir, gufan eða rennibrautin. Ekki síst er það félagslegi þátturinn. Samverustund fjölskyldunnar, hitta fólk í pottinum og eiga þar góðar samræður eða bara að njóta kyrrðarinnar þegar enginn annar er.“

Jóhanna segir að markmið miðlægs sundkorts væri að auka þjónustu við íbúa sveitarfélaganna, stuðla að heilsubót og afþreyingu á hagkvæmari máta.

Bendir hún á að margir þeirra sem sækja sundstaði reglulega eigi sundkort í fjölmörgum sundlaugum jafnvel víðs vegar um landið.

„Hver og einn á eflaust sína uppáhalds hverfislaug eða bæjarlaug en með miðlægu sundkorti eykst fjölbreytnin til heilsubótar og afþreyingar. Með aukinni rafrænni þjónustu væri hægt að losa okkur við samanvöðluð pappírskortin úr veskinu og eiga eitt kort í allar laugar með appi í símanum.“

Grein Jóhönnu í heild sinni.