Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, er harðorður í garð Reykjavíkurborgar vegna framkvæmda sem hamla för hjólandi og gangandi í borginni.
Gísli deilir færslu föðurs á Twitter sem birtir mynd af dóttur sinni sem kemst ekki sinnar leiðar í skólann á hjóli vegna framkvæmda í götunni. „Við þurftum að príla yfir með hjólin. Verktakafyrirtæki komast upp með allt sem þeim dettur í hug í Reykjavík.“
Gísli spyr: „Hvernig væri að taka á þessu Reykjavík?“ og merkir hann Dóru Björt Guðjónsdóttur, oddvita Pírata, Dag B. Eggertsson, oddvita Samfylkingar, Líf Magneudóttur, oddvita VG og Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, enda ættu þau að vera með símann hjá embættismönnum.
Hann bætir við:
„Það þarf bæði að laga þetta einstaka mál strax og hætta þessu dekri við verktakana. Þau sem sjá um þau samskipti þurfa að standa sig betur.“
Hvernig væri að taka á þessu @reykjavik? Eða @DoraBjort @Dagurb @lifmagn @hildurbjoss sem eruð með símann hjá embættismönnum. Það þarf bæði að laga þetta einstaka mál strax og hætta þessu dekri við verktakana. Þau sem sjá um þau samskipti þurfa að standa sig betur. https://t.co/94La3v8DBr
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) May 30, 2022