Hvernig myndir þú lýsa þessu línuriti?

Lóðrétt lína Marels frá áramótum. Línuritin yfir gengi hlutabréfa í fyrirtækjum sem skráð eru í kauphöllina, Nasdaq Iceland, og birt eru í hverjum þætti Jóns G., vekja ævinlega mikla athygli. Þau ná 12 mánuði aftur í tímann og því hægt að horfa á nokkuð víðan tímaramma. Hækkun bréfa í Marel er auðvitað ævintýrleg og það verður að segjast eins og er að svona hækkun er óvenjuleg hjá svo rótgrónu og stóru fyrirtæki. Hvernig myndir þú lýsa þessu línuriti? Ja, hún er altént lóðrétt lína Marels frá áramótum. Síðastliðið ár hefur gengið hækkað um 34,8 prósent. Sagt og staðið!