Helgi Magnússon fjárfestir ræðir nýútkomna bóka sína LÍFIÐ Í LIT, sem Björn Jón Bragason skráði, við Jón G. Hauksson. Þeir kom mjög víða við í mjög fróðlegu spjalli - meðal annars fara þeir yfir hver sé kjör samsetning hluthafahópa. Helgi hætti í stjórn Marels á aðalfundi félagsins fyrr í dag. Helgi keypti sitt fyrsta hlutabréf aðeins tólf ára og svarar því til spurður um kaupin að hann hafi verið svolítill nörd í æsku. Hann segir frá sameiningu Íslandsbanka og Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, FBA, og lýsir því hvernig hafi verið að vinna í stjórn með Orca-hópnum svonefnda. Hann segir einnig frá samstarfi sínu við föður sinn, Magnús Helgason. Bókin LÍFIÐ Í LIT er einkar læsileg bók og fróðlegt innleg í atvinnusögu Íslendinga síðustu áratugina. Þess má geta að þeir Jón G. og Helgi eru fyrrverandi ritstjórar Frjálsrar verslunar - en Jón tók við af Helga snemma árs 1992 og gegni því starfi síðan í aldarfjórðung.
Hver er kjör samsetning hluthafahópa?
Fleiri fréttir
Nýjast