Pistlahöfundur viðskiptarits Morgunblaðsins í dag vandar Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni ekki kveðjurnar. Eins og kunnugt er ákvað Þórólfur að veita íslensku Eurovision-förunum undanþágu fyrir bólusetningu áður hópurinn hélt til Hollands á dögunum.
Á baksíðu ViðskiptaMoggans er nafnlaus dálkur sem kallast Innherji en þar er fjallað um þessa ákvörðun sem vakti furðu einhverra, til dæmis Gunnars Braga Sveinssonar eins og Hringbraut fjallaði um. Aðrir fögnuðu því að hópurinn hefði verið bólusettur, til dæmis Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður.
„Það er glaðhlakkalegur hópur sem spókar sig um götur markaðnum Rotterdam þessa dagana. Hann er á opinberu framfæri og mun halda merkjum Íslands á lofti í hinni óviðjafnanlegu söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva. Og það sem meira er – hópurinn er allur bólusettur,“ segir í pistlinum.
Pistlahöfundur virðist ekki hafa mikið álit á Daða og gagnamagninu eða Eurovision-söngvakeppninni yfir höfuð.
„Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni þótti það ekkert nema sjálfsagt að hleypa listamönnunum gegnu fram fyrir röðina svo þeir gætu dillað sér fyrir framan myndavélarnar í þær tvær mínútur sem frægð þeirra fær að vara. Það verður sennilega hápunkturinn á ferli þeirra flestra en ákvörðun læknisins fer seint í slíkar sögubækur.“
Pistlahöfundur spyr svo hvernig það megi að vera að hinn ágæti hópur, sem á allt gott skilið, skuli hafa verið tekinn fram fyrir ýmsa forgangshópa þegar bóluefni er annars af skornum skammti.
„Hvernig getur sóttvarnalæknir, sem hefur verið í fararbroddi þeirra sem lagt hafa nær óbærilegar byrðar á marga þjóðfélagshópa svo misserum skiptir, litið á það sem skyldu sína að púkka sérstaklega upp á söngvara og dansara sem áhuga hafa á því að taka þátt í Eurovision? Þótt einhverjum kunni að þykja keppnin skemmtileg þá telst þátttaka í henni engin þjóðarnauðsyn.“
Bent er á það að enn séu áhöld um hvort Ólympíuleikarnir í Tókýó fari fram í sumar og forgangshópum sé ýtt til hliðar svo syngja megi í Rotterdam.
„Á sama tíma og fulltrúar RÚV fá þessa einkennilegu sérmeðferð hafa mikilvæg útflutningsfyrirtæki ýmiss konar fengið þvert nei við beiðni um að láta bólusetja mikilvæga sérfræðinga sem senda þarf á afskekktar slóðir í þeim tilgangi að setja upp og koma í gagnið tæknibúnaði sem búið er að selja fyrir milljarða á milljarða ofan. Í sumum tilvikum fara sérfræðingarnir samt, óbólusettir, úr landi og þurfa að húka á afskekktum svæðum þar sem lítil heilbrigðisþjónusta er til staðar.“
Pistlahöfundur sendir Þórólfi vænar pillur í pistli sínum sem hann endar á þessum orðum:
„Hvar fékk Þórólfur Guðnason þá flugu í höfuðið að mikilvægara væri að bólusetja söngvarana en þetta fólk? Var það í öllu uppklappinu hjá Gísla Marteini (sem er úti í Rotterdam með hópnum) eða í annarri dagskrá þar sem hann hefur m.a. komið syngjandi fram? Þess skal bara óskað að dómgreind þess manns sem ber hina miklu ábyrgð bresti ekki oft með svo afgerandi hætti.“