Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar og formaður Velferðarnefndar Alþingis skammar Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar fyrir að tala niður dómstóla og segir hann fara rangt með um sóttvarnarlög. Þetta kemur fram í opnu bréfi Helgu Völu til Kára sem birtist á Vísi í morgun.
Þar segist Helga Vala hafa viljað senda Kára línu eftir viðtal við hann í Kastljósi í gær. Þar sagði Kári meðal annars að ekki mætti draga annan lærdóm af úrskurði héraðsdóms um reglugerð heilbrigðisráðherra en að dómurum héraðsdóms gætu orðið á mistök.
Helga Vala segir hinsvegar að niðurstaðan hefði aldrei getað orðið önnur. „Ég er í þeirri stöðu að vera hvort tveggja löglærð og hluti löggjafans og stýri að auki þeirri nefnd er annaðist vinnslu frumvarps heilbrigðisráðherra til breytinga á sóttvarnarlögum. Frumvarpið kom til þingsins rétt fyrir jól en gestakomur og vinnsla hófust strax á nýju ári eftir að umsagnarferli lauk. Skemmst er frá því að segja að ekkert í texta frumvarpsins, né heldur greinargerð með frumvarpi ráðherra sem skýrir betur einstaka greinar frumvarpsins og lýsir vilja höfundar, benti til þess að ætlunin væri að útbúa heimild til að skylda mætti ferðfólk til dvalar í sóttvarnarhúsi.“
Ekki rætt um að skylda ætti fólk í sóttvarnarhús
Þá segir Helga Vala að um það leyti sem vinnsla frumvarpsins hafi staðið yfir í velferðarnefnd hafi átt sér hörmulegt slys á Djúpvegi í Skötufirði. Þá hafi hafist umræða um mikilvægi þess að stjórnvöldum bæri skylda til að koma upp sóttkvíarhóteli fyrir þá sem ekki hefðu í önnur hús að venda þegar halda skal sóttkví.
Segir Helga Vala að í þeirri umræðu hafi ekki komið til álita að húsið yrði notað til að skylda ferðafólk í sóttkví. Áfram mætti skylda sýkta einstaklinga sem neita einangrun til dvalar í umræddu sóttvarnarhúsi.
„Í lok vinnu velferðarnefndar er útbúið nefndarálit og hafði þá stjórnarmeirihlutinn í nefndinni komist að þeirri niðurstöðu sín á milli að ekki yrði af setningu tveggja íþyngjandi atriða í lög að þessu sinni er varðar útgöngubann og skyldubólusetningu heldur skyldi það bíða heildarendurskoðunar laganna. Þá var sömuleiðis ekkert um það rætt að skylda ætti fólk til dvalar í sóttkvíarhúsi.“
Segir umræðuna aldrei hafa átt sér stað
Helga Vala segir að enginn nefndarmaður eða aðrir þingmenn hafi rætt um skyldudvöl í sóttkvíarhóteli utan undirritaðrar sem tilgreint hefði að ekki hefði verið vilji stjórnarliða til að setja inn slíka skyldu.
„Hafði ég á orði í báðum umræðum á þingi að mér hugnaðist frekar að setja skýr heimildarákvæði í lögin frekar en að vera í þeirri stöðu, líkt og þá var, að stjórnvöld væru að framkvæma aðgerðir sem þau hefðu ekki lagastoð fyrir. En gott og vel, á þeim tímapunkti nefndi hvorki sóttvarnarlæknir né heilbrigðisráðherra þörf á skyldudvöl í sóttvarnarhúsi, ég aumur stjórnarandstöðuþingmaður fann mig því ekki knúna til að berjast fyrir slíku ákvæði, enda hafði enginn sýnt neinn vilja til þess.“
Hún segist ekki vita hvað Kári hafi átt við þegar hann hafi sagt „alla hafa reiknað með að lögin væru sett til að hægt væri að skikka fólk í sóttvarnarhús“ því það hafi hvorki verið að finna í frumvarpi ráðherra, nefndaráliti velferðarnefndar né hafi nokkur einasti þingmaður rætt um það í þingsal. „Hvaða „alla“ þú ert að tala um veit ég ekki, því þessi umræða átti sér ekki stað.“
Ekki megi tala niður dómstóla
Að síðustu bendir Helga Vala á að þegar um frelsissviptingu sé að ræða, þ.e. þegar fólk fær ekki ráðið ferðum sínum og staðsetningum, verði að vera skýr lagaheimild til staðar og lítið mál að bæta slíkri heimild í upptalningu atriða sem fyrir eruí sóttvarnarlögum. Það hafi hinsvegar ekki verið gert og ber héraðsdómari ekki ábyrgð á því að sögn Helgu Völu.
„Kæri Kári. Við viljum standa saman að sóttvörnum og við viljum bæði fylgja sóttvarnarlækni en ég vil líka að ráðamenn þjóðarinnar, sem falið hefur verið að fara með framkvæmdavaldið, tryggi að fyrir öllum ákvörðunum sínum sé skýr lagastoð. Það er grundvallaratriði í réttarríki að valdhafar fari að leikreglum sem settar eru til varnar borgurum landsins.“
Hvetur Helga Vala Kára þá næst til að íhuga hvort rétt sé að tala niður dómstóla landsins sem eingöngu hafi það lögbundna hlutverk að dæma eftir lögunum. Segist Helga Vala ekki viss um að það sé til þess fallið að auka samstöðu meðal þjóðarinnar.