Hvað verður um WOW-vörumerkið? Er það verðlaust eftir fall WOW eða hægt að nýta það við stofnun nýs flugfélags? Í upphafi var það tákn um snerpu, framsækni og léttleika í þjónustu. En breyttust gildin á bak við þegar halla tók undir fæti? Virði vörumerkja og gildin á bak þau verða til umfjöllunar í þætti Jóns G. í kvöld. Vörumerkin Apple, Kodak og Bláa lónið verða skoðuð sérstaklega. Þá verður fjallað um netverslun Nettó og fimm vörumerki Samkaupa í tengslum við verslanir þess. En Nettó vann einmitt Áruna fyrir netverslun sína, þ.e. var með árangursríkustu herferðina hjá ÍMARK á dögum. Þá verður fjallað um hvaða áhrif fall WOW hafi á byggingu nýrra hótela og útleigu atvinnuhúsnæðis á næstu mánuðum.
Gestir Jóns G. í kvöld eru Friðrik Larsen, lektor við HÍ, Gunnar Egill Sigurðsson, frkvstj. hjá Samkaupum, og Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita.