„Það er náttúrulega bara hægt að benda í rauninni á eitt núna síðustu daga. Þú kannski kannast við það þegar börn eru að spila tölvuleiki, í lokaborðinu þá er alltaf stóri kallinn sem þarf að vinna og stóri kallinn í þessu tilfelli eru greinilega leigusalar. Af því að um leið og það gerðist á mánudaginn, að tvær vélar voru kyrrsettar, önnur í Montreal í Kanada og hin í Miami, þá segir sagan okkur það að það er upphafið að endinum hjá flugfélögum.“
Þetta segir Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins, sem er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hann örlög WOW air, sem hætti allri starfsemi í dag. Trausti segir rekstur WOW einfaldlega hafa verið ósjálfbæran.
Í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins er því velt upp, bæði í fréttagrein og leiðara, hvað þeir átta milljarðar sem söfnuðust í skuldabréfaútboði félagins í september fóru í, en engin svör hafa borist um það. Fjárhæðin átti að endast í 18 mánuði en entist í tvo mánuði. „Þeir gáfu nú sjálfir út tilkynningu, WOW, í lok nóvember, þar sem kom fram að þeir þyrftu langtímafjármögnun. Þetta gerist þarna rétt um tveimur mánuðum eftir að skuldabréfaútboðinu lauk. Umræðan hefur svolítið verið þannig að þeir sem hafa stigið fram úr hópi skuldabréfaeigenda hafa verið mjög bjartsýnir og vilja bara keyra þetta svolítið áfram en það er líka hópur þarna meðal skuldabréfaeigenda sem hefur krafist svara við þessum spurningum, í hvað nákvæmlega þetta fór. Því að það er ekki að sjá að þetta hafi fari í að greiða niður einhverjar langtímakröfur, þannig að hvaða skammtímakröfur voru greiddar og þar fram eftir götunum. Við getum orðað það þannig að 8 milljarðar hefðu átt að fleyta félaginu lengra en þetta,“ segir Trausti.
Óljóst eignarhald tveggja véla
WOW leigði samtals 11 flugvélar, tvær af Jin Shan 20 á Írlandi, sem voru kyrrsettar á mánudaginn, sjö af Air Lease Corporation (ALC) í Bandaríkjunum og auk þess var ein leigð af Tungnaa Aviation Leasing Limited og ein af Sog Aviation Leasing Limited í Írlandi. Í nótt voru allar flugvélarnar kyrrsettar.
„Þetta eru svolítið harkalegar aðgerðir af því að það var nú bara einn farþeginn sem t.d. tísti á Twitter, hún var í Baltimore í vél og var í hjólastól og var á leiðinni út og þá vakti það athygli hennar að lögreglan kom þarna inn.“
Jin Shan 20 er í eigu kínverska bankans Bank of Communications og ALC var stofnað af Steve Hazy, eins ríkasta manns heims. Tungnaa Aviation Leasing Limited og Sog Aviation Leasing Limited voru bæði stofnuð í kringum skuldabréfaútboðið í september og eru skráð á sama heimilisfang í Írlandi. Þau eru bæði í eigu Sky Aviation Leasing International Limited, sem er skráð á Cayman-eyjum. Sökum þess að móðurfélag Tungnaa og Sog er skráð þar er erfitt að finna upplýsingar um raunverulegt eignarhald þess.
„Þetta er ein af þeim spurningum sem við reyndum að fá svar við í gær. Það bara vakti upp spurningar hjá okkur, við vildum fá svar við því hver ætti þær vélar,“ segir Trausti, en Viðskiptablaðið hefur ekki haft erindi sem erfiði í þeim efnum heldur.
Nánar er rætt við Trausta í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.