„Hvað réttlætir það að Siggi ríkisforstjóri fái 4 milljónir fyrir að vera heima í sóttkví en Gunna í móttökunni fái 500 þús.“

„Hvað réttlætir það að Siggi ríkisforstjóri fái 4 milljónir fyrir að vera heima í sóttkví en Gunna í móttökunni fái 500 þús. Bæði eru að gera nákvæmlega það sama; vera heima í sóttkví,“ segir Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, í færslu á Facebook.

Segir hann að nú þegar margir hverjir séu heima í sóttkví vegna COVID-19 faraldursins sé kominn sé tími á borgaralaun. „Ástandið opinberar þetta. Lítum til dæmis til hins opinbera hvar starfsmenn eru tryggðir í bak og fyrir og launabil víða orðið verulegt. Laun þessa fólks er greidd úr sameiginlegum sjóðum landsmanna.“

Setur hann stór spurningamerki við hvers vegna verið sé að halda fólki í sömu launum og áður nú þegar velta eigi milljörðum til vinnumarkaðarins til reksturs sem gangi ekki í núverandi ástandi.

„Hvaða vit er í þessu? Hvernig má þetta heita sanngjarnt? Hvernig er þetta ekki blatant mismunun?“