Hvað ræður líftíma fyrirtækja? Finnur Geirsson, forstjóri Nóa-Síríusar, gestur Jóns G.

Líftími fyrirtækja er klassískt rannsóknarefni í viðskipta- og hagfræði. Hvers vegna ná sum fyrirtæki 100 ára aldri á meðan önnur lenda í stöðnun og hnignunarskeiði - og lognast út af? Þetta er meginþemað í þættinum Viðskipti með Jóni G. í kvöld. Jón ræðir við Finn Geirsson, forstjóra Nóa-Síríusar, en fyrirtækið fagnar 100 ára afmæli sínu á þessu ári og fer Jón yfir nokkrar rannsóknir í viðskiptafræðum um þetta efni og þær mátaðar við stefnu og gildi Nóa-Síríusar sem reynst hafa svo vel.

Þá kemur Aðlheiður Ósk Guðmundsdóttir, formaður Stjórnvísi, ennfremur í þáttinn til Jóns, en félagið hélt mjög athyglisverða ráðstefnu nýlega um mikilvægi aðlögunarhæfni hjá einstaklingum og fyrirtækjum á óvissutímum.

ÞETTA EINKENNIR LANGLÍF FYRIRTÆKI

(að mati Hollendingsins Arie De Geus í bókinni „Hið lifandi fyrirtæki“ (e. The Living Company).

  1. Næm fyrir umhverfi sínu og markaði - og búa yfir aðlögunarhæfni.
  2. Verða hluti af sjálfsmynd starfsmanna.
  3. Velja valddreifingu og forðast eftir bestu getu mikla miðstýringu.
  4. Fjölbreytileiki starfsmanna ræður för.
  5. Stöðugleiki í yfirstjórn og íhaldssöm í fjármálum.

Fram kemur í samtali þeirra Jóns G. og Finns að Finnur leggur mikið upp úr dreifðri ákvarðanatöku hjá fyrirtækinu og fjölbreytni í starfsmannahaldi, bæði hvað varðar bakgrunn og aldur starfsmanna.

Finnur hefur lagt áherslu á að pressa niður stjórnunarpýramídann og straumlínulaga reksturinn; þ.e. forðast eftir bestu getu mikla miðstýringu. Mælingar sýna að starfsmenn eru stoltir af að vinna hjá fyrirtækinu en það er einmitt mjög einkennandi hjá fyrirtækjum sem ná árangri - þau verða hluti af sjálfsmynd starfsmanna.

Þá einkennir það Nóa-Síríus hversu ótrúlegur stöðugleiki hefur verið í stjórn og framkvæmdastjórn - en aðeins fjórir forstjórar hafa verið hjá Nóa-Síríusi frá upphafi - og má því segja að ákveðin íhaldssemi ríki á sama tíma og það er framsækið í vöruþróun og markaðsmálum; þ.e. byggt er á reynslu; sem og gömlum og góðum gildum.

Ingileif Bryndís Hallgrímsdóttir var stjórnarformaður Nóa-Síríusar frá 1954 til 2005 eða í 51 ár. Velta má því fyrir sér hvort það sé met hér á landi.

Helstu eigendur Nóa-Síríusar eru afkomendur Hallgríms Benediktssonar sem eignaðist fyrirtækið árið 1924 en hann var umsvifamikill athafnamaður á sínum tíma, auk þess að sitja á alþingi og í bæjarstjórn Reykjavíkur. Þess utan var hann þekktur glímukappi. Hallgrímur ólst upp í sárri fátækt en varð umsvifamikill athafnamaður, þingmaður og bæjarfulltrúi í Reykjavík.

Sjá viðtalið við Finn í heild sinni á meðfylgjandi myndbandi.