Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri Icelandair, er gestur Jóns G. í kvöld. Linda fékk í síðustu viku verðlaun hjá Stjórnvísi í hópi millistjórnenda. Sem yfirflugstjóri Icelandair er Linda leiðtogi yfir 600 flugmanna hjá félaginu. Hún lýsir því í viðtalinu hvað einkenni góðan flugstjóra. Linda segir að flugmenn séu í stöðugri þjálfun í flughermum félagsins og þar leiðbeinir hún kollegum sínum. Hún ætlaði upphaflega í hagfræði, lærði síðan flugrekstrarfræði í Bandaríkjunum og heim komin hóf hún flugnám.
Hvað einkennir góðan flugstjóra?
Fleiri fréttir
Nýjast