Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ræddi um heimilin og vaxtahækkanir í Kastljósi kvöldsins á RÚV. Þar á móti henni var Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, var greinilega mjög ánægður með frammistöðu Kristrúnar í þætti kvöldsins og segir hann á Facebook:
„Enn eitt tour de force hjá Kristrúnu Frostadóttur í Kastljósi. Kristaltær og sargandi rökföst,“ sagði hann.
Bætti hann svo við: „Hvað ætlar Samfylkingin að bíða lengi með að gera hana að formanni?“
Hefur þetta vakið mikla athygli, sérstaklega í ljósi þess að meira hefur skinið í Kristrúnu upp á síðkastið en Loga Einarsson, þaulsetnasti formaður flokksins frá stofnun.
Margir taka undir með Össuri, en Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, gerir þó athugasemd við það sem hún hafði að segja:
„En er ástæða minn kæri að skattgreiðendur greiði niður vaxtaokrið fyrir viðskiptabankanna þrjá í formi "hærri vaxtabóta" sérstaklega í ljósi þess að bankarnir eru að hagnast um 80 milljarða í ár? Reyndar hafa viðskiptabankarir þrír hagnast um 1000 milljarða frá hruni,“ segir hann með broskalli. „Eigum við ekki bara að láta þá sjá um að skila þessum ofsagróða til neytenda í formi lægri vaxta og hófstilltari þjónustugjalda?“