Í morgun var greint frá því í Morgunblaðinu að starfsmenn Hvals hf. hafi lagt hald á dróna sem fylgdist með störfum þeirra er þeir voru að koma með hval og vinna á planinu.
Fram kemur að dróninn komu frá Swiss National Broadcasting Corporation, sem er samkvæmt Kristjáni Loftssyni, framkvæmdastjóra Hvals, ekki svissneska ríkisútvarpið, heldur einkarekinn vefsíða með mjög líkt nafn.
„Í gær [fyrradag] kom hvalbátur inn með hval og menn eru að vinna þarna á planinu,“ er haft eftir Kristjáni, sem heldur áfram: „Þá verða þeir varir við dróna sem flýgur þarna yfir í um 20 metra hæð. Samkvæmt lögum er það allt of nálægt, drónar eiga að vera í 150 metra fjarlægð frá athafnasvæðum nema leyfi liggi fyrir til að fara inn á svæðið,“
Líkt og áður segir tóku starfsmenn Hvals drónann.
Blaðamaðurinn Helgi Seljan virðist alls ekki sáttur með það, þvert á móti.
„Hvað á þessi skrípaleikur að standa lengi þarna uppi í Hvalfirði?“ spyr Helgi. Hann spyr hvað Lilju Alfreðsdóttur finnist um þetta, og veltir fyrir sér hvort þyki lagi hreinlega af því að Kristján Loftsson eigi hlut í máli.
„Hvað segja ráðherrar fjölmiðla og utanríkismála um þessa hegðun? Eða er hún í lagi af því að þetta er Kristján?“
Fram hefur komið að lögreglan ætlist til þess að Hvalur hf. skili drónanum, en fyrirtækið virðist hafa lítinn áhuga á því.