„Húsvíkingar hafa því miður verið plataðir upp úr skónum“

Tómas Guðbjartsson læknir segir að tími sé kominn til að viðurkenna að kísilverksmiðjan á Bakka hafi verið misheppnuð framkvæmd. Um 80 starfsmenn verksmiðjunnar fengu upp­sagnar­bréf í dag. Ástæðan er sögð vera að Co­vid-19 faraldurinn hafi raskað heims­markaði með kísil­málm og haft veru­leg nei­kvæð á­hrif á verð og eftir­spurn.

„Það var ekki á vandræði Bakka bætandi og lífeyrissjóðir og bankar hafa ítrekað þurft að færa niður fjárfestingar sínar í þessari misheppnuðu verksmiðju - sem var plantað niður skammt frá íbúðabyggð í einhverri fallegustu vík á Íslandi. Reksturinn hefur frá byrjun verið í járnum og sífellt vesen með rekstur hennar. Gleymum ekki að verksmiðjan var komin í gjörgæslu löngu áður en Covid faraldurinn brast á og öndunarvélameðferð verið yfirvofandi lengi,“ segir Tómas á Facebook. „Faraldurinn er því aðeins enn eitt kjaftshöggið - sem gæti orðið rothögg.“

Hann segir ömurlegt að starfsfólk missi vinnuna en Húsvíkingar hafi verið plataðir upp úr skónum.

„Húsvíkingar hafa því miður verið plataðir upp úr skónum, ekki síst af þingmönnum sínum í VG. Það má draga lærdóm af klúðrinu á Bakka og vonandi mun Arionbanki ranka við sér og hætta alveg við áform um að endurlífga ruslverksmiðju United Silicon í Helguvík. Það er ljóst að sú endurlífgun skilar engu og best að viðurkenna að hún er, líkt og Bakki, algjörlega misheppnuð framkvæmd. Stóriðja er ekki lengur málið á Íslandi og löngu kominn tími á nýrri og vistvænnni áherslur í atvinnuppbyggingu.“