Auglýsing sem birtist á síðu 22 í Morgunblaðinu í dag hefur vakið talsverða athygli en þar er auglýst uppboð til slita á sameign. Það sem vekur helst athygli er að „eignin“ sem boðin verður upp er hundur af tegundinni enskur setter.
Uppboðið er einnig auglýst á vef Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu en það verður haldið í aðstöðu sýslumanns í Hlíðasmára næstkomandi þriðjudag. Ekki koma fram miklar upplýsingar um uppboðið á vef sýslumanns, aðeins að um sé að ræða enskan setter og greiða þurfi við hamarshögg.
Auglýsingin hefur vakið talsverð viðbrögð, meðal annars í Hundasamfélaginu þar sem spurt er hvort löglegt sé að bjóða hunda upp með þessum hætti.
„Ég veit ekki svarið við spurningunni. En ef satt reynist finnst mér þetta siðlaust ferli. Eitt að missa allar dauðar eignir en að selja fjölskyldumeðlim til hæstbjóðanda finnst mér rangt,“ segir í einu svarinu. Annar bendir á að hundar teljist lausafé samkvæmt lögum og ef eitthvað verðgildi sé að finna í því megi bjóða það upp.
Margir eru þó þeirrar skoðunar að þetta sé óheppilegt og þá helst fyrir dýrið og eigendurna: „Ömurlegt fyrir vesalings dýrið,“ segir einn á meðan annar bætir við:
„Þetta er náttúrulega fáránlegt. Dýrin eru manni oft miklu meira virði en bara peningarnir. Það sama á við um bæði hesta og hunda, fólk tengist þessum dýrum oft sterkum böndum. Undarlegt að þetta megi bara.“