Sjö ára drengur bitinn af hundi

Lögreglan var í gær kölluð á vettvang eftir að hundur hafði bitið sjö ára dreng. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Drengurinn var með bitsár á hægra læri og var roði í kringum sárið.

Faðir drengsins, eigandi hundsins og hundurinn voru á vettvang. Engar kröfur um refsingu voru frá föður drengsins.

Eiganda hundsins var mjög brugðið varðandi hegðun hundsins og sagði svona aldrei hafa gerst, en hundurinn er eins árs gamall.

Eigandi hundsins ætlaði að láta svæfa hundinn í kjölfar atviksins.