Hundur beit barn í Hafnarfirði og eigandinn stakk af

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag kemur fram að barn á grunnskólaaldri í Hafnarfirði hafi verið bitið af hundi í dag.

Eigandi hundsins lét sig þó hverfa áður en lögreglu bar að garði. „Þau viðbrögð þarf viðkomandi að eiga við eigin samvisku en barnið slapp blessunarlega með skrekkinn.“ segir í dagbókinni.

Sem betur fer slapp barnið vel, en hundurinn er talinn hafa verið í ól hjá eiganda sínum þegar hann beit barnið.