Barn var flutt til aðhlynningar á Heilsugæslu á Selfossi og síðan til frekari aðstoðar í Reykjavík eftir að hundur á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu beit það í andlitið. Barnið, sem mun hafa verið gestkomandi á bænum, komið heim að kvöldi dags eftir að gert hafði verið að sárum þess. Þetta kemur fram dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.
Þá kom upp eitt mál varðandi heimilisofbeldi á Suðurlandi í liðinni viku. Það til meðferðar eftir viðeigandi ferlum. Annað mál, óskylt því fyrra, er varðar brot á nálgunarbanni kom upp og er í venjubundnum rannsóknarfarvegi.
Ferðamaður öklabrotnaði á göngu í íshelli í austanverðum Breiðamerkurjökli þann 6. apríl. Björgunarsveitir kallaðar til aðstoðar og viðkomandi borinn í farartæki og síðan fluttur til móts við sjúkrabifreið. Aðgerðin tók um 3 klst.
Átta umferðarslys voru tilkynnt til lögreglu en meiðsl einungis skráð í einu þeirra. Þar var um að ræða bifreið sem lenti út af vegi sunnan við Gullfoss og valt. Ökumaður einn í bílnum og komst út af sjálfsdáðum en var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsi.