Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar, ætlaði í arkitektúr til Þýskalands á sínum tíma. Hún var nánast búin að pakka niður þegar hún breytti um kúrs og hélt til Bandaríkjanna í nám í heilsugeiranum. Ágústa er gestur hjá Jóni G. í kvöld en það eru 33 ár síðan hún opnaði sína fyrstu líkamsræktarstöð hér á landi hefur frá þeim tíma verið eins konar drottning á þessum markaði. Gífurleg samkeppni er á milli líkamsræktarstöðvanna og heilsumarkaðurinn veltir nokkrum milljörðum króna. Þau Jón G. og Ágústa ræða einnig heilsufar Íslendinga en við mælumst í þyngri kantinum í samanburði við aðrar þjóðir - og státum af því vera þyngstir og feitastir Norðurlandabúa.
Ætlaði í arkitektúr - byggir upp heilsu!
Fleiri fréttir
Nýjast