Hulunni svipt af leyndarmáli Haraldar – Sjáðu myndbandið

Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og fyrrverandi starfsmaður Twitter, boðaði á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi einhvers konar stórtíðindi í dag sem hann ætlaði að deila með fylgjendum sínum í dag.

Hulunni af þessu leyndarmáli hefur nú líklega verið svipt af því í dag birtist tónlistarmyndband á YouTube-síðu Haraldar við lag hans Almost Over You.

Haraldur spilar undir listamannsnafninu Önnu Jónu son sem er vísun í nafn móður hans sem lést þegar hann var aðeins ellefu ára gamall.

Ekki hefur fengist staðfest hvort lagið og útgáfa tónlistarmyndbandsins séu umrædd tíðindi sem Haraldur boðaði en það verður að teljast ansi líklegt. Myndbandið við lagið má sjá hér að neðan og er óhætt að segja að Haraldur skili sínu vel í laginu og rúmlega það.