Hulunni svipt af hlið lögreglunnar - Björn Bjarna fer hamförum: „Sorgarsaga“

Mikið hefur verið fjallað um Samherja-símamálið svokallaða en hafa komið fram nýjar upplýsingar í málinu. Stundin greinir frá því að lögreglan hafi fengið fram játningu hjá einstaklingi sem segist hafa byrlað Páli Steingrímssyni, starfsmanni Samherja, með svefnlyfjum.

Margir hafa velt því fyrir sér hvers vegna fjórir blaðamenn séu með réttarstöðu sakbornings í málinu en í frétt Stundarinnar um málið kemur sú ástæða fram.

Ljóst er að ekki er um að ræða þjófnaðarbrot heldur miðlun klámefnis og brot á friðhelgi. „Lögreglan hefur staðfest að myndbönd af kynferðislegum toga hafi verið í síma brotaþola og að afrit slíkra myndbanda hafi verið sent úr símanum. Brotaþoli hefur staðfest við lögreglu að í síma hans hafi verið myndbönd af honum í kynlífsathöfnum,“ segir í kröfugerð lögreglu.

Þá eru blaðamennirnir fordæmdir í kröfugerðinni og sakaðir um að hafa notfært sér viðkvæma stöðu einstaklings sem sé heimildarmaðurinn. Lögreglan segir að fjölmiðlar hafi nýtt sér „augljóst brot“ heimildarmannsins sér í hag, „faglega og fjárhagslega“, og það „Í stað þess að staldra aðeins við og veita X stuðning og hjálp“.

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, fór hamförum á Facebook eftir að þetta kom í ljós:

„Fréttastofa Ríkisútvarpsins og yfirstjórn RÚV ættu að draga saman yfirlit fyrir nefskattsgreiðendur yfir upphlaupið sem varð á stofnuninni eftir að Kjarninn birti fyrstu fölsuðu fréttina um að lögreglan vildi upplýsingar um heimildarmenn í Samherjamálinu,“ segir hann.

„Uppnámið á þeim fölsku forsendum leiddi meira að segja til útifunda í Reykjavík og á Akureyri. Sjálfur blaðafulltrúi Assange, WikiLeaks-stjórnanda, Kristinn Hrafnsson flutti innblásna og urrandi skammarræðu um aðstoðarmann dómsmálaráðherra fyrir framan Alþingishúsið. Rannasóknarblaðamennirnir skrifuðu fréttir um sjálfa sig án heimilda.“

Birni er mikið niðri fyrir: „Þetta er í raun sorgarsaga um stöðu íslenskra fjömiðlamanna um þessar mundir og hún hefur hlotið sérstakan gæðastimpil formanns Blaðamannafélags Íslands. Hreinsi RÚV sig ekki af framgöngu sinni vegna þessara falsfrétta fer það á svig við allar reglur sem gilda um starfsemi þessa opinbera hlutafélags á framfæri skattgreiðenda.“