Huldu nóg boðið: „Akur­eyringar eru verstu öku­menn al­heims“

Hulda B. Wa­age, kraft­lyftinga­kona og marg­faldur Ís­lands­meistari í greininni, minnir öku­menn á að fara var­lega. Hulda er bú­sett á Akur­eyri og beinast orðin að öku­mönnum í bænum. Eiríkur Jónsson greindi fyrst frá.

„Jæja, í fyrra var keyrt á barn fyrir framan mig og barnið mitt á leið í skólann. Allan 1. bekk þurfti ég að fylgja henni og byrjun 2. bekk,“ segir Hulda og bætir við að í morgun hafi dóttir hennar fengið hana til að fylgja sér að ljósunum í sam­veru­stund. Ekki gekk það á­falla­laust eins og Hulda bendir á.

„Það munaði hárs­breidd að ekki væri keyrt yfir hana. Þetta var alveg þannig að ég ópaði upp yfir mig og hún skjálfandi á beinunum. Hvort ég komi barninu aftur í sjálf­stæðið að geta gengið um er risa spurning. Akur­eyringar eru verstu öku­menn al­heims,“ segir Hulda og lík­lega ó­hætt að taka undir þessi hvatningar­orð hennar til öku­manna um að flýta sér hægt og fara var­lega – sér­stak­lega í ná­grenni við skóla þar sem börn eru á ferli.